Héraðsdómur Reykjavíkur Dómur 15. apríl 2026. Mál nr. S - 1608/2026 : Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Hauki Ármannssyni Dómur Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 26. mars 2026 , á hendur Hauki Ármannssyni, kt. , , Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa föstudaginn 31. október 2025 ekið bif reiðinni sviptur ökurétti um Breiðhöfða í Reykjavík, við Bíldshöfða. Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Ákærð i sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði verið birt ákæra og fyrirkall. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a - lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins. Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærð i er fædd ur í . Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 26. mars 2026 , gekk st ákærði undir greiðslu sekta með tveimur sáttum Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 14. febrúar 2020 fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Þá gekkst ákærði einnig undir greiðslu sektar með sátt Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 7. janúar 2021 fyrir ak stur sviptur ökuréttindum. Með dómi H éraðsdóms Reykjavíkur 15. júní 2021 var ákærða gert að sæta fangelsi í 90 daga, meðal annars fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 19. apríl 2023 var ákærða gert að sæta fangelsi í 4 mánuði, meðal annars fyrir akstur sviptur ökuréttindum og nú síðast var 2 ákærða með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 5. mars 2025 gert að sæta fangelsi í 6 mánuði, meðal annars fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Að öðru leyti hefur sakaferill ákærða ekki þýðingu við úr lausn máls þessa. Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í sjötta sinn, eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga gerst sekur um akstur sviptur ökurétt indum . Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju þykir refsing ákærð a hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði. Með vísan til sakaferils ákærð a þykir ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna. Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari . Rut Hrafns Elvarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan. Dóms orð: Ákærð i , Haukur Ármannsson , sæti fangelsi í fjóra mánuði. Rut Hrafns Elvarsdóttir