Héraðsdómur Austurlands Dómur 8. október 2025 Mál nr. S - 144/2025: Ákæruvaldið (Fríða Thoroddsen aðstoðarsaksóknari) gegn Aroni Þormari Thomassyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) Dómur Mál þetta, sem tekið var til dóms 1. þessa mánaðar, var höfðað með ákæru lögreglu - stjórans á Austurlandi útgefinni 8. síðasta mánaðar á hendur Aroni Þormari Thomassyni, kt. , fyrir skjalafals, umferðar - og ávana - og fíkniefnalagabrot, með því að hafa, miðvikudaginn 17. júlí 2024, ekið bifreiðinni , sviptur ökurétti, óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana - og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 90 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 4,6 ng/ml), um Þjóðveg 1, Suðurlandsveg vestan við Hofgarð, í Sveitarfélaginu Hornafirði, og ekið bifreiðinni greinda leið með rangt skráningarnúmer á bifreiðinni (skráningarnúmerið ), og fyrir að framvísa til lögreglu þegar akst ur hans var stöðvaður fölsuðu ökuskírteini. Auk þess að hafa í umrætt sinn haft í vörslum sínum samtals 9,82 grömm af maríhúana, 10 stykki af LSD - ofskynjunarefni og 9,5 stykki af MDMA, sbr. efnaskrá lögreglu nr. 54296, en lögregla hafði fundið efnin við le it í bifreið ákærða eftir handtöku. Með þessu er ákærði samkvæmt ákæru talinn hafa brotið gegn 1. mgr. 58. gr., 1. mgr., sbr. 2. mgr. 50. gr., sbr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, 1. mgr. 157. gr. og 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga nr. 65/1974 um ávana - og fíkniefni. Í ákæru er þess krafist að hann verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar, til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019 og til að sæta upptöku á haldlögðum efnum samkvæmt efnaskrá lögreglu nr. 54296, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Með ákæru sama lögreglustjóra, útgefinni 11. ágúst síðastliðinn á hendur sama ákærða og Y , kt. , voru þeim gefnir að sök þjófnaðir með því að hafa aðfaranótt miðvikudagsins 16. ágúst 2023, í félagi brotist inn í , með því að spenna upp útidyrahurð og stolið þaðan tíu 500 ml bjórdósum af gerðinni Gull Lite og Tuborg 2 Classic, 20 flöskum af 187 200 ml hvít víni, 20 flöskum af 200 ml freyðivíni og 25 lítra Carlsberg - bjórkút ásamt tengistykki á stút hans. Enn fremur með því að hafa stuttu síðar sama kvöld í félagi brotist inn á , með því að spenna upp útidyrahurð, og stolið þaðan samtals fimm flöskum af ste rku áfengi af tegundunum Volcan Tequila, Café Tequila, Bacardi Razz, Bacardi Blanco og Gordons gin, 25 stykkjum af 350 ml og 500 ml bjórdósum af gerðinni Gull, Tuborg og Úlfrún og sex dósum af 355 ml Red Bull orkudrykkjum, en lögregla fann hluta af áfengin u á þáverandi heimili ákærða Arons að og á heimili Y að , við húsleitir sem fóru fram miðvikudaginn 16. ágúst 2023. Með þessu hafi þeir brotið gegn 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og í ákærunni er þess krafist að þeir verði dæmdi r til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Um málsatvik er skírskotað til framangreindra ákæra. Þegar mál vegna ákærunnar frá 11. ágúst síðastliðinn var þingfest 11. síðasta mánaðar gekkst Y skýlaust við því að hafa framið þá háttsemi sem honum e r gefin að sök í því ákæruskjali. Ákærði Aron Þormar sótti á hinn bóginn ekki þing þann dag þrátt fyrir boðun, en af hans hálfu sótti þing Stefán Karl Kristjánsson lögmaður sem ákærði Aron Þormar hafði samkvæmt fyrirkalli óskað eftir að skipaður yrði verja ndi sinn við meðferð málsins. Í ljósi játningar Y og þess að ekki var unnt að leggja dóm á þátt beggja var þáttur ákærða Arons Þormars klofinn frá málinu og svo sameinaður í fyrirliggjandi mál 1. þessa mánaðar, sbr. heimild í 1. mgr. 169 gr. laga nr. 88/20 08, en farið var með þátt Y eftir 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Á dómþingi 1. þessa mánaðar játaði ákærði Aron Þormar svo skýlaust sakargiftir sam - kvæmt báðum f yrr greindum ákærum og samþykkti upptöku á ávana - og fíkniefnum. Sannað er með þeirri afstöðu hans, sem í ljósi gagna málsins er ekki ástæða til að draga í efa að sé sannleikanum samkvæm, að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem saksókn á hendur honum tekur til samkvæmt framansögðu. Þykir háttsemin réttilega heimfærð til re fsiákvæða í ákæru og hefur hann því unnið sér til refsingar. Af hálfu ákærða Arons Þormars er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og að sakarkostnaður, þar á meðal hæfilega ákvarðaðar þóknanir verjenda fyrir dómi og á rannsóknarstigi, verði að hluta ti l felldur á ríkissjóð. Samkvæmt sakavottorði frá 4. síðasta mánaðar hefur ákærða Aroni Þormari í sex til - vikum verið gerð refsing, í flestum tilvikum fyrir brot gegn umferðarlögum. Með sátt við lögreglustjóra 11. október 2018 samþykkti hann greiðslu sekta r og tímabundna sviptingu 3 ökuréttar fyrir að aka undir áhrifum ávana - og fíkniefna. Hann samþykkti aðra sátt af því tagi 27. ágúst 2019 og var honum þá á ný gerð sekt og hann tímabundið sviptur ökurétti fyrir sams konar brot, sem hann framdi fyrir gerð sát tarinnar frá 11. október 2018 og var því gerður hegningarauki. Með dómi 28. febrúar 2020 var hann dæmdur í átta mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir líkamsárás. Með sátt við lögreglustjóra 10. maí 2022 féllst hann á sektargreiðslu og tíma bundna ökuréttarsviptingu fyrir brot gegn lögreglulögum og umferðarlögum sem hann framdi árið 2021, en á meðal þeirra var akstur undir áhrifum ávana - og fíkniefna og án þess að hafa endurnýjað ökuskírteini sitt. Með sátt við lögreglustjóra 14. febrúar 2023 samþykkti hann sektargreiðslu fyrir að aka sviptur ökurétti á árinu 2022. Loks var hann með dómi 26. apríl 2023 dæmdur í 45 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt fyrir brot gegn umferðarlögum, þar á meðal fyrir að aka þrívegis undir áhrifum ávana - og fíkniefna, 20. apríl 2022, 23. sama mánaðar og 5. júní 2022. Var farið með síðasta aksturinn af þessum þremur sem aðra ítrekun fyrir að aka undir áhrifum ávana - og fíkniefna, en fyrri tvö tilvikin sem hegningarauka við sáttina frá 10. maí 2022. Ákærði er í máli þessu sakfelldur fyrir þjófnaði í félagi við annan mann, skjalafals og misnotkun skjals, akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana - og fíkniefna, auk varslna þess háttar efna. Hann hefur samkvæmt framansögðu játað skýlaust að hafa framið broti n og horfir það honum til málsbóta. Um brot ákærða nú fyrir að aka undir áhrifum ávana - og fíkniefna fer sem um fjórða brota hans af því tagi sé að ræða, en um brot hans nú með því að aka sviptur ökurétti fer líkt og um annað brot hans af því tagi ræði þar sem öll brotin samkvæmt dómnum 26. apríl 2023 voru framin fyrir þann tíma þegar hann gerði sáttina við lögreglustjóra 14. febrúar 2023. Eftir framangreindu, þar á meðal að sakaferli ákærða virtum, sbr. 5. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/ 1940, og að teknu tilliti til 77. gr. almennra hegningarlaga og 2. mgr. 70. gr. sömu laga að því er brotin samkvæmt ákærunni 11. ágúst síðastliðinn varðar og þess að nokkuð var liðið frá þeim brotum þegar ákæra var gefin út, þykir refsing ákærða hæfilega á kveðin fangelsi í fjóra mánuði. R étt þykir að skilorðsbinda refsinguna að hluta, á þann veg að tveir mánuðir refsingarinnar skulu falla niður að liðnum tveimur árum frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Með vísan til 3. mgr. 99. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 er ævilöng ökuréttarsvipting ákærða áréttuð. 4 Ákærði hefur fallist á kröfu ákæruvalds um upptöku á ávana - og fíkniefnum. Á grund - velli 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 um þess háttar efni skal ákærði sæta upptöku á hi num haldlögðu efnum, eins og nánar greinir í dómsorði. Með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 er ákærði dæmdur til að greiða sakar - kostnað málsins, sem ekki þykja efni til að fella að hluta á ríkissjóð. Samkvæmt yfirliti um slíkan kostnað vegna sa kargifta samkvæmt ákærunni 8. september síðastliðinn og með stoð í framlögðum gögnum nemur kostnaður vegna aðgerða við rannsókn 177.269 krónum, en annar sakarkostnaður fellur til vegna starfa tilnefnds verjanda ákærða á rannsóknarstigi, Elimars Haukssonar lögmanns, og vegna starfa hins skipaða verjanda ákærða fyrir dómi, lögmannsins Stefáns Karls Kristjánssonar. Þóknanir þeirra þykja að virtri aðkomu þeirra og umfangi málsins hæfilega ákvarðaðar, að meðtöldum virðisauka - skatti, samkvæmt því sem í dómsorði g reinir. Hákon Þorsteinsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Dómsorð: Ákærði, Aron Þormar Thomasson, sæti fangelsi í fjóra mánuði. Fresta skal fullnustu tveggja mánaða af refsingunni og falli sá hluti hennar niður að liðnum tveimur árum frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt. Ákærði sæti upptöku á 9,82 grömmum af maríhúana, 10 stykkjum af LSD ofskynjunarefni og 9,5 stykkjum af MDMA. Ákærði greiði 411.629 krónur í sakar kostnað, þar með talda 167.400 króna þóknun skipaðs verjanda síns fyrir dómi, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, og 66.960 króna þóknun tilnefnds verjanda síns á rannsóknarstigi, Elimars Haukssonar lögmanns.