Héraðsdómur Norðurlands vestra Dómur 26. mars 2025 Mál nr. S - 17/2025 : Ákæruvaldið ( Sigurður Hólmar Kristjánsson lögreglustjóri ) g egn Anton i Orr a Kvaran ( enginn ) Dómur I Mál þetta sem var þingfest og tekið til dóms 11. mars sl. er höfðað af lögreglustjóranum á Norðurlandi vestra með ákæru 3. febrúar sl . á hendur Antoni Orra Kvaran , fæddum , til heimilis að , fyrir eftirtalin I. M eð því að hafa, má nudaginn 23. september 2024, sviptur ökurétti ævilangt með dómi, ekið bifreiðinni um Helluhraun í Hafnarfirði, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. (Mál 007 - 2024 - 53666) . II. Með því að hafa, þriðjudaginn 15. október 2024, sviptur ökurétti ævilangt með dómi, ekið bifreiðinni um Ægisgrund á Skagaströnd, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. (Mál 315 - 2024 - 5594) Tel st háttsemi ákærða í báðum ákæruliðum 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77, 2019. þess er krafist að ákærði verði dæmdu r til refsingar og til greiðslu alls II Ákærði sótti ekki þing og boðaði ekki forföll þegar málið var þingfest 11. mars sl. Málið er því dæmt með vísan til 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð 2 sakamála enda er þess getið í fyrirkalli sem birt var fyrir ákærða sjálfum á lögmætan hátt 4. febrúar sl. að svo mætti fara með málið. Þar sem ákærði hefur ekki látið málið til sín taka verður með vísan til þess sem að framan er rakið að líta svo á að hann viðurkenni háttsemi þá sem honum er í ákæru gefin að sök og telst sök hans þar með nægilega sönnuð enda er ákæran í samræmi við gögn málsins og brot hans þar réttilega fært til refsiákvæða. Um atvik máls vísast til ákæru. Ákærði á að baki nokkurn sakarfer il en samkvæmt sakavottorði hefur hann frá árinu 2013 alls átta sinnum hlotið dóma eða gengist undir sátt hjá lögreglustjóra. Flest brot hans hafa verið gegn umferðarlögum einkum akstur undir áhrifum áfengis eða ávana - og fíkniefna og akstur sviptur ökurét ti. Hinn 29. janúar 2021 var ákærði dæmdur í sjö mánaða fangelsi fyrir akstur undir áhrifum ávana - og fíkniefna og akstur sviptur ökurétti. Var þar við það miðað að ákærði hafi í sjötta sinn ekið undir áhrifum áfengis eða ávana - og fíkniefna og í fimmta si nn sviptur ökurétti. Í samræmi við áralanga dómvenju var tekið tillit til fyrri brota við ákvörðun refsingar fyrir ölvunarakstur , akstur undir áhrifum ávana - og fíkniefna og sviptingarakstur og ákærði að teknu tilliti til fyrri brota dæmdur í s jö mánaða fa ngelsi. Samkvæmt því sem að framan er rakið er ákærði nú í sjötta sinn sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti þannig að ítrekunar gæti milli brota hans og þykir refsing hans, að gættri dómvenju, hæfilega ákveðin fjögurra mánaða fangelsi. Sakarkostnaður hefur ekki fallið til við meðferð málsins. Af hálfu ákæruvalds sótti málið, Sigurður Hólmar Kristjánsson lögreglustjóri á Norðurlandi vestra. Halldór Halldórsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Dómsorð: Ákærði, Anton Orri Kvaran , sæti fangelsi í fjóra mánuði. Halldór Halldórsson