Héraðsdómur Norðurlands eystra Dómur 27. nóvember 2025 Mál nr. S - 528/2024 : Ákæruvaldið ( Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari ) g egn X Dómur 1 Mál þetta, sem var dómtekið 2. október sl., höfðaði lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra 25. nóvember 2024, á hendur X , kt. , , f y rir brot á barnave rn darl ö gum, me ð þ v í a ð hafa m á nudaginn 5. ágú st 2023, veri ð me ð í umsj á sinni ba rn i ð A , kt. , á gistiheimilinu , á H ú sav ík , vanr æ kt það andlega og l í kamlega þ annig a ð heilsu ba rn sins var h æ tta b úi n, vegna annarlegs á stands á k æ r ð u umr æ ddan dag og afskiptaleysis. Á herbergi þeirra á gistiheimilinu komst ba rn i ð m.a. í brotið glerglas og hljóp u m með glerbrot í munninum. Telst þ etta var ða vi ð 98. gr. ba rn averndarlaga nr. 80 / 2002. Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostna 2 Ákærða krefst sýknu af kröfum ákæruvalds en til vara vægustu refsingar sem lög l eyfa. Málavextir 3 Að morgni 5. ágúst 2023 , klukkan 10:43, barst lögreglunni á Húsavík tilkynning um konu í annarlegu ástandi við . Lögreglumenn fóru á vettvang og hittu þar fyrir ákærðu, sem sat á gangstéttinni en sonur hennar, A , hljóp þar í kring. Matur var á jörðinni, bæði voru nokkuð vel til fara en barnið óhreint á höndum og í andliti og með sár á höndum. Rætt var við ákærðu sem var meðal annars boðið að blása í áfengismæli, sem hún féllst ekki á að gera. Varð úr, eftir að lögreglumenn höfðu ráðf ært sig við aðalvarðstjóra, að lögregla ók þeim mæðginum á gistiheimili þar sem ákærða kvað þau halda til. 4 Þegar lögregla kom á lögreglustöð kom þangað maður að nafni B og lýsti því að hafa hitt ákærðu og drenginn á höfninni um klukkan átta þennan morgun. Ákærð a hafi verið hágrátandi en drengurinn hlaup ið um , nokkuð frá ákærðu. Lögregla hafði þá samband við fulltrúa barnaverndar og var afráðið að kanna aðstæður mæðginanna. 5 Lögregla og starfsmaður barnaverndar fóru á gistiheimilið klukkan 14:10 en þau fund u ekki ákærðu og drenginn. Um klukkustund síðar kvaðst barnaverndarstarfsmaðurinn hafa 2 fengið upplýsingar um að þau mæðginin svæfu í kjallara gistiheimilisins, eigandi gistiheimilisins vissi af þeim þar og var ekki talin ástæða til að aðhafast að svo stödd u. 6 Klukkan 16:18 kom vitnið D , starfsmaður á gistiheimilinu, til lögreglu og lýsti áhyggjum sínum af drengnum. Segir að hún hafi lýst því að hafa farið heim úr vinnunni en ekki getað hætt að hugsa um barnið og því beðið kærasta sinn að koma með henni að a thuga aðstæður. Það hafi þau gert um klukkan 16. Þeim hafi verið brugðið enda hafi ákærða sjáanlega verið í slæmu ástandi til að hafa umsjá barnsins. Þau sýndu lögreglu myndband af samskiptum sínum við ákærðu. Þar megi sjá drenginn hlaupa um ganginn með br otinn fót af glerglasi upp í sér. Þau hafi tekið brotið af drengnum, rætt við ákærðu og þá ákveðið að tilkynna lögreglu um ástandið. 7 Lögregla og starfsmaður barnaverndar fóru í gistiheimilið á nýjan leik þar sem barnavernd hafði afráðið að fjarlægja dreng inn úr þessum aðstæðum. Faðir barnsins væri á leið norður til að sækja hann. Er því lýst í skýrslu lögreglu að ákærða hafi ekki verið samvinnuþýð en þó ekki veitt mótþróa. Hún hafi verið mjög þvoglumælt og áttað sig illa á aðstæðum. Hún hafi ekki verið sam mála því að hún væri ekki í standi til að annast barnið. Þá hafi hún ausið fúkyrðum yfir lögreglu og fulltrúa barnaverndar. 8 Í framhaldinu var drengnum gefið að borða og honum svo ekið áleiðis til Reykjavíkur til móts við föður hans sem tók við honum klukk an 20:35. 9 Fyrir ligg ja þrjár stuttar uppt ökur vitnisins D , starfsmann s á gistiheimilinu , af vettvangi . Á einni þeirra má sjá að vitnið gengur niður í kjallara með upptöku í gangi . Niðri er drengurinn á vappi með brotinn fót af vínglasi í munni sér. Einnig má sjá að óreiða er í herberginu. Þá má sjá drenginn taka bjórdós úr poka. Ákærð a biður fólkið að slaka á en kærasti D segist ekki getað slakað á þegar hann sjái svona nokkuð. Framburðir ákærðu og vitna fyrir dómi 10 Ákærða kv a ð st haf a verið á hóteli í boði vinar síns, E sem væri eigandi þess. Þetta herbergi hafi ekki verið í útleigu enda hafi það verið ósamþykkt. Þetta kvöld hafi hún legið uppi í rúmi með syni sínum, hún hafi verið búin að drekka , en allt verið í rólegheitum og þau að búa sig undir a ð fara að sofa. Fyrr, þegar þau voru að koma heim, hafi hún séð par sem annaðist hafi orðið þess vör að hún hefði séð þau og þeim verið brugðið vegna þess . Hún hafi aldrei ætlað að segja til þeirra en þau hafi ruðst inn í herbergi hennar og öskrað á þau mæðgin þar sem þau lágu upp í rúmi og sagt að hún hafi ekki séð neitt og hún skyldi ekki segja vini sínum, E , frá. Herbergið hafi ekki verið sóðalegt en fólkið hafi rótað í tösku hennar áður en uppta kan hófst. Þessar aðstæður verði raktar til háttsemi fólksins sem þarna kom. Ákærða kvaðst haf a drukkið rauðvín þennan dag, of mikið, en hún muni þó eftir þessu. Þ au mæðginin hafi bara legið og hún lesið fyrir barnið sem hafi aldrei verið í hættu og aldrei verið með brotið glas í munninum. Ákærða kvað mikið hafa gengið á í lífi sínu og í sambandi hennar við barnsföður sinn. H ún hafi síðast séð drenginn í lok nóvember 2024 og viti ekki hvar hann er . Hún sé nú í Virk og áfallameðferð hjá sálfræðingi. 3 11 Vitnið lögreglumaður nr. F kv að tilkynningu hafa borist um konu í annarlegu ástandi við og farið þangað. Þar hafi ákærð a átt í einhverjum minniháttar útistöðum við mann á rafskutlu. Starfsfólk hafi sagt ákærðu í einhvers konar annarlegu ástandi, en ekki á ttað sig á hvort það væri vegna vímu eða geðræn s vand a . Lögreglumennirnir hafi rætt við ákærðu á vettvangi . Áfengislykt hafi verið af henni og hún verið frekar illa áttuð . Hann hafi ráðfært sig við aðalvarðstjóra og verið afráðið að skutla þeim mæðginum á gistiheimili. Ákærðu hafi verið boðið að blása í áfengismæli, sem hún hafi afþakkað. Haft hafi verið samband við starfsmann barnaverndar sem hafi viljað athuga ástand þeirra. Þau hafi farið á gististaðinn en ekki fundið þau þar. F leiri tilkynningar haf i borist yfir daginn, ein frá hafnarstarfs manni um ferðir þeirra mæðgina á bryggjunni. Þá hafi starfskona á gistiheimilinu komið , ásamt kærasta sínum, og lýst mikl um áhyggj um af barninu og framvísað myndböndum. Þar hafi mátt sjá drenginn með bjórdós og með brotið vín glas í munninum . Barnavernd hafi ákveðið að fjarlægja barnið úr aðstæðunum og koma því til föður síns. Þau hafi farið í kjallara gistiheimilisins og hitt þar ákærðu sem hafi verið illa áttuð og ekki til samvinnu. Herbergið hafi verið ósnyrtilegt, drasl um allt, föt á gólfi, matarleifar og áfengis umbúðir. Ákærða hafi verið beðin um að taka til helstu nauðsynjar fyrir drenginn en hún ekki gert það. 12 Vitnið lögreglumaður nr. G kvað st hafa verið upplýst um afskipti af ákærðu og barni hennar við o g að eftir samtal við varðstjóra og barnavernd hefði þeim verið ekið á gistiheimilið. Einnig að einhver hefði skýrt frá atvikum við höfnina og að lögregla og barnavernd hefði farið verið á gistiheimilið en ekki fund ið þau þar. Síðan hafi komið par á lögreg lustöðina . Konan hafi verið starfsmaður á gistiheimilinu og haft áhyggjur af barninu. Hún hafi sýnt lögreglu myndband þar sem drengurinn hafi hlaupið um með fót af vínglasi upp í sér. Þau h efðu tekið það af honum og síðan tilkynnt málið til lögreglu. Vitni ð kvaðst haf a verið með í för þegar aftur var farið á gistiheimilið og einnig fulltrúi frá barnavernd, barnavernd hafi þá verið búin að ákveða að taka barnið úr aðstæðunum. Vitnið kvað hafa verið erfitt að ræða við ákærðu. Hún hafi verið óstöðug á fótunum , hæg í hreyfingum og svörum og áfengislykt af henni . Drengurinn hafi hins vegar verið hress og faðir hans verið fenginn til að sækja hann. 13 Vitnið D kvaðst hafa verið starfsmaður á gistiheimilinu þegar atvik urðu . Y firma ður hennar hafi sagt henni að vinkona hans myndi dvelja þarna og hún skyldi vera gestgjafi hennar . Konan hafi verið undir áhrifum og ófær um að hugsa um barn sem með henni var. Hún hafi farið heim úr vinnu en afráðið að fara þangað aftur vegna þess sem hún hafði orðið áskynja, k onan ha fi legið sofandi eða meðvitundarlaus og hjá he nni bæði áfengi og einhverjar töflur. K ærast i vitnisins hafi þá farið með henni þangað og þau tekið með mat handa barninu. Á gólfi herbergisins hafi verið ó hreinar bleyjur , barnið verið í óhreinni bleyju og með brot úr gler glasi í munni sér. Þeim hafi tekist að taka upp myndband þegar þau reyndu að tala við konuna . Þegar hún hafi verið að mynda barnið, þar sem það var að sækja sér bjór , hafi konan rifið símann af henni . Þau hafi reynt að ná samband við konuna. Þ að hafi ekki borið árangur og þau því snúið sér til lögreglu . Niðurstaða 4 14 Ákærðu er gefið að sök að hafa vanrækt son sinn , sem þá var rétt að verða þriggja ára, andlega og líkamlega þannig að heilsu barnsins var hætta búin, vegna annarlegs ástands ákærðu umræddan dag og afskiptaleysis. Á herbergi þeirra á gistiheimilinu hafi barnið m eðal annars komist í brotið glerglas og hl aupið um með glerbrot í munninum. 15 Ákærða hefur gengist við því að hafa drukkið rauðvín þennan dag , og of mikið af því. V itn in D og lögreglum enn nr. F og G hafa borið að hún hafi verið undir slíkum áhrifum að hún hafi ekki getað annast barnið og varð úr að barnavernd tók barnið úr hennar umsjá. Þ á liggur fyrir upptaka af drengnum á vappi með brotið glas í munni sér . Verður talið sannað að ákærða hafi í umrætt sinn sýnt af sér slíka vanrækslu að heilsu barn sins hafi verið hætta búin. Verður ákærða því sakfelld fyrir þá háttsemi sem lýst er í ákæru og er þar rétt heimfærð til refsiákvæðis. 16 Sakaferill ákærðu hefur ekki áhrif við ákvörðun refsingar. Verður refsing ákærðu ákveðin fangelsi í 30 daga skilorðsbundið sem bundin verður skilorði svo sem nánar greinir í dómsorði. 17 Enginn sakarkostnaður va r af rekstri málsins. Arnbjörg Sigurðardóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan að gættu ákvæði 1. mgr. 184. gr. laga nr. 88/2008. D ó m s o r ð : Ákærða, X , sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu dóms þessa haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.