Héraðsdómur Vesturlands D Ó M U R 12. febrúar 2026 Mál nr. E - 318/2025 Patrekur Ísak Ólafsson (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Hval hf. (Stefán A. Svensson lögmaður) og til réttargæslu íslenska ríkið (Ingvi Snær Einarsson lögmaður) _____________________________________________________________ Lárentsínus Kristjánsson héraðsdómari 2 Dómur Héraðsdóms Vesturlands 12. febrúar 2026 I. Dómkröfur, aðild og málsmeðferð 1. Mál þetta er höfðað 3. nóvember 2025. Stefnandi er Patrekur Ísak Ólafsson, Hringhamri 7A, 221 Hafnarfirði, og stefndi er Hvalur hf., Miðsandi, 301 Akranesi. Stefndi stefnir til réttargæslu íslenska ríkinu, Arnarhvoli, 101 Reykjavík. 2. Stefnandi krefst þess að stefnda Hval hf. verði gert að greiða stefnanda 2.319.667 kr. auk dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 4. nóvember 2025 til greiðsludags. 3. Stefnandi krefst þess til vara að stef nda verði gert að greiða honum 1.323.758 kr. auk dráttar - vaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 4. nóvember 2025 til greiðsludags. 4. Stefnandi krefst málskostnaðar úr hendi stefnda. 5. Stefndi krefst sýknu af kröf um stefnanda og málskostnaðar úr hendi stefnanda að skaðlausu. 6. Mál þetta er rekið samhliða fimm öðrum málum þar sem einstaklingar byggja á því að þeir eigi launakröfur á hendur stefnda vegna hvalvertíðar 2023 þrátt fyrir að ekkert hafi orðið úr hvalveiðum það ár vegna ákvörðunar stjórnvalda. Aðalmeðferð í öllum málunum fór fram sam - hliða 27. og 28. janúar sl. Fyrir dómi gáfu skýrslu stefnandi og Kristján Loftsson, framkvæmda - stjóri stefnda. Þá gáfu skýrslu Guðmundur Steinbach fjármálastjóri stefn da, Jón Karl Svavars son, Örn Rafnsson, vaktstjóri í Hafnarfirði, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðs félags Akraness. Skýrslur forsvarsmanns stefnda og star fsmanna stefnda sem og skýrsla for manns Verkalýðsfélags Akraness koma til athugunar við úrlausn framangreindra mála að breyttu breytanda. Eftir munnlegan málflutning var málið dómtekið. Réttargæslustefndi skilaði inn greinargerð í málinu þar sem hann röks tuddi þá ákvörðun að hann myndi ekki láta málið til sín taka. Byggir sú afstaða einkum á þeim grunni að hér sé um að ræða ágreining á milli einkaaðila jafnframt því að vísað er til máls stefnda á hendur réttargæslustefnda fyrir Héraðsdómi Reykja - víkur nr. E - 2042/2025 þar sem krafist er viðurkenningar á bótaskyldu íslenska ríkisins gagnvart stefnda vegna setningar á reglugerð nr. 642/2023. Í samræmi við framangreint gerir réttargæslustefndi engar kröfur og engar kröfur eru gerðar á hendur honum. 3 II. Málsat vik 7. Stefndi fékk upphaflega leyfi til hvalveiða 29. janúar 1947 á grundvelli þágildandi laga nr. 72/1928 um hvalveiðar. Leyfi stefnda var endurnýjað þann 22. október 1959 á grundvelli núgildandi laga nr. 26/1949 um hvalveiðar. Á grundvelli leyfisins stu ndaði stefndi hefðbundnar hvalveiðar allt til ársins 1985, er samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins frá 1982 um svokallaðan 0 - kvóta tók gildi, er fól í sér bann við öllum veiðum í atvinnuskyni frá 1986. Hvalveiðar í atvinnu - skyni hófust aftur við Íslandsstrendu r árið 2006 og munu hafa verið stundaðar síðan, þó með hléum. Stefndi hefur á framangreindu tímabili notið heimilda til veiða á langreyði í atvinnuskyni, samkvæmt gildandi regluverki á hverjum tíma. Gerir stefndi í dag út tvö hvalveiðiskip, auk þess sem st arfsemi fer fram í Hvalfirði og Hafnarfirði í tengslum við veiðar stefnda. 8. Í málinu er deilt um hvort stefnandi eigi launakröfu vegna hvalveiða sem til stóð að stunda sumarið 2023. Fyrir þá vertíð er ágreiningslaust að stefndi var með í gildi leyfi ti l veiða á lang - reyði árin 2019 2023, útgefið 5. júlí 2019, með tilvísun í 1. gr. laga nr. 26/1949 um hvalveiðar með síðari breytingum. 9. Matvælaráðherra gaf í júní 2023 út reglugerð nr. 642/2023, um breytingu á reglugerð nr. 163/1973 um hvalveiðar, sem undirrituð var 20. júní og birt í Stjórnartíðindum samdægurs. Sam - kvæmt 2. gr. reglugerðarinnar var hún sett samkvæmt heimild í 4. gr. laga nr. 26/1949, um hval - veiðar. Var þar í 1. gr. mælt fyrir um að á árinu 2023 skyldu veiðar á langreyðum ekki hefjast fyrr en 1. september 2023. Mál þetta snýst um það hvort , áður en framangreind ákvörðun var tekin í júní 2023, hafi verið komnir á bindandi ráðningarsamningar gagnvart nánar tilgreindum einstaklingum, þ. á m. stefnanda, þannig að þeir eigi rétt til fullra v ertíðarlauna án tillits til ákvörðunar ráðherra. 10. Stefndi kvartaði yfir meðferð málsins til umboðsmanns Alþingis sem skilaði áliti þann 5. janúar 2024. Það var álit umboðsmanns að ráðherra hefði við útgáfu reglugerðarinnar skort nægilega skýra stoð í 4 . gr. laga um hvalveiðar, eins og sú grein yrði skýrð með hliðsjón af markmiðum sínum, lagasamræmi og grunnreglum stjórnskipunarréttar um vernd atvinnuréttinda og atvinnufrelsis. Þá yrði að leggja til grundvallar að útgáfa reglugerðarinnar hefði falið í sé r fyrirvaralausa og verulega íþyngjandi ráðstöfun m.t.t. stöðu og hagsmuna stefnda. Taldi umboðs - maður, einkum í ljósi réttmætra væntinga félagsins, að við þær aðstæður sem uppi voru við útgáfu reglugerðarinnar, yrði að leggja til grundvallar strangar kröf ur til þess að gætt væri meðalhófs m.t.t. stöðu og hagsmuna stefnda. Var það álit umboðsmanns að útgáfa reglugerðarinnar hefði ekki samrýmst kröfum um meðalhóf. 4 11. Stefndi sendi þá 11. janúar 2024 erindi á embætti ríkislögmanns, hvar óskað var eftir við - ræðum við íslenska ríkið um bótauppgjör. Stefndi taldi við blasa í þeim efnum að félagið hefði orðið fyrir stórfelldum tekjumissi af því að geta ekki veitt langreyðar þann tíma sem bannið varði og síðar hagnýtt. Þá hefði félagið orðið fyrir stórfelldum fjá rútlátum vegna ákvörðunar ráðherra. Til frádráttar gætu hins vegar komið, í samræmi við kenningar skaðabótaréttarins, spöruð útgjöld þann tíma sem bannið varði, einkum í formi launakostnaðar og annars breytilegs kostnaðar. Varðandi launakostnað væri þess þ ó að gæta að nánar tilgreind stéttarfélög hefðu lýst yfir þeirri afstöðu sinni að þau litu svo á að nánar tilgreindir einstaklingar ættu launakröfur á hendur stefnda vegna þess tímabils sem bannið varði. Væri þessi forsenda á annað borð rétt, hefði slíkt e ðli málsins samkvæmt áhrif á afmörkun fjárhæðar ætlaðra sparaðra útgjalda við útreikning skaða - bótakröfu, hvar þeim sparnaði væri þá raunar ekki til að dreifa. 12. Stefndi hefur höfðað viðurkenningarmál á hendur íslenska ríkinu til heimtu skaðabóta með st efnu þingfestri 8. apríl 2025. Íslenska ríkið hefur skilað greinargerð og krefst sýknu. Ljóst er að endanleg fjárhæð bótakröfu stefnda á hendur ríkinu kann að ráðast af því hvort nánar til - greindir einstaklingar, þ. á m. stefnandi, eigi launakröfur á hendu r stefnda, líkt og ef til hefð - bund innar hvalvertíðar hefði stofnast, en fyrir liggur að stefndi hefur ekki greitt laun því til samræmis. Atvik er varða stefnanda sérstaklega 13. Á vormánuðum 2023 réði stefndi einstaklinga, þ.m.t. stefnanda, til starfa við veiðar á lang - reyðum á hvalvertíðinni sumarið 2023, en fyrirhugað var að veiðarnar myndu hefjast hinn 21. júní 2023. Vinna í frystihúsi stefnda átti svo að hefjast í kjölfarið, hinn 23. júní 2023. Stefndi byggir reyndar á því sbr. síðar að þarna hafi e kki verið um eiginlega ráðningu að ræða heldur vilyrði um að stefnandi fengi á grundvelli fyrirliggjandi ráðningarsamningi við stefnda að taka þátt í fyrirhugaðri hvalvertíð með tilheyrandi vinnu og meiri ábata í samræmi. 14. Stefnandi kveðst á síðustu ár um reglulega hafa ráðið sig til vinnu hjá stefnda í frystihúsi yfir hvalveiðivertíðina. Hefur hann þannig starfað hjá stefnda fjórar vertíðir, árin 2015, 2018, 2022 og 2023, en stefnandi fékk jafnframt ráðningu hjá stefnda veturinn 2022 2023. 15. Fyrirko mulagið hefur almennt verið með þeim hætti að stefnandi hefur upplýst stefnda um að hann hefði áhuga á að starfa á komandi vertíð og fengið í kjölfarið staðfestingu frá stefnda um að hann væri ráðinn í starfið. Sami háttur hafi verið hafður á vegna vertíða rinnar 2023 en stefn - 5 andi kveðst hafa tjáð stefnda að hann óskaði eftir að vinna á vertíðinni og fengið munnlega stað - festingu frá stefnda. Hafi þannig að sögn stefnanda komist á samningur á milli aðila um vinnu stefnanda í frystihúsi stefnda hvalveiðitíma bilið 2023. 16. Vinna á hvalveiðivertíð sé frábrugðin þeirri vinnu sem fari fram hjá stefnda á öðrum tímum ársins, bæði hvað varði eðli vinnunnar, vinnutíma og vinnuskilyrði. Stefnandi hafi gert ráðstaf - anir í samræmi við framangreint og gerði því ráð fy rir að hefja störf á vertíðinni 23. júní 2023 og að hún myndi vara næstu þrjá mánuði. 17. Þremur dögum áður en að hvalveiðivertíðin átti að hefjast, eða 20. júní 2023, hafi ráðherra svo tekið ákvörðun um að takmarka veiðitímabil langreyða. Í kjölfarið haf i stefndi sent upp - sagnarbréf á þá sem aðeins hafi verið ráðnir til starfa á vertíðinni, 29. júní 2023. Stefnanda og öðrum sem höfðu verið við störf um veturinn hafi þá verið tjáð að fallið yrði frá ráðningu á vertíð. Stefnanda hafi hins vegar verið boðin störf við viðhald og ýmis lítil verkefni sem fyrirhugað var að ráðast í eftir vertíð. 18. Framangreint hafði víðtækar afleiðingar fyrir stefnanda enda hafði hann ekki aðra vinnu sumarið 2023 og höfðu allflest fyrirtæki þegar gengið frá ráðningum fyrir sum arið. Stefnandi tók því tilboði stefnda um að þiggja störf við viðhald til loka ágústmánaðar 2023. Í þessu samhengi ítrekar stefnandi að um ræddi ráðningu í annað starf en stefndi hafði ráðið stefnanda í. Starf á vertíð hafi þannig verið verulega frábrugði ð því starfi sem stefnandi hafði gegnt um veturinn og raunar sömuleiðis því starfi sem honum var boðið sumarið 2023 eftir að hætt var við hvalvertíð. 19. Öðrum verkefnum er sinnt á vertíð, vinnutími er annar og þeim mun lengri og laun eftir því umtalsver t hærri. Stefnandi varð því eftir sem áður fyrir talsverðu fjártjóni. 20. Ný reglugerð um veiðar á langreyðum, nr. 895/2023, var gefin út 31. ágúst 2023. Í kjölfarið hafi verið haldið til veiða hinn 6. september 2023 og hvalveiðivertíðin staðið yfir í 24 daga, til 30. september 2023. Stefnandi kveðst hafa unnið umrætt tímabil og til 4. október 2023 en það hafi verið aðeins brotabrot af þeirri vertíð sem lagt hafði verið upp með. Aðdragandi ákvörðunar ráðherra og eftirmál 21. Matvælaráðherra undirritaði 1 0. ágúst 2022 reglugerð nr. 917/2022, um eftirlit með velferð - bundið eftirlit með því að farið væri að lögum um velferð dýra við veiðar á hvölum á hvalvertíð 2022. 6 22. Þann 17. janúar 2023 bárust stefnda drög að eftirlitsskýrslu MAST með velferð dýra við veiðar á hvölum, sem var afrakstur fyrrnefnds eftirlits. Var stefnda veittur frestur til andmæla sem stefndi sendi 26. janúar 2023 þar sem stefndi lýsti því að til að geta tekið afstöðu til þess sem segði í skýrsludrögunum, þ. á m. að sannreyna réttmæti/forsendur niðurstaðna, væri stefnda nauðsynlegt að fá í hendur öll þau gögn sem lágu skýrslunni til grundvallar auk þess að benda á að óljóst væri hvort rekið væri st jórnsýslumál í tengslum við skýrsluna. MAST svaraði erindi stefnda 2. febrúar 2023 þar sem fram kom að [e]f stjórnvaldsákvörðun [yrði] tekin á grundvelli þeirra gagna sem lögð hafa verið fram [myndi] slíkt verða tilkynnt til [stefnda]. Stefndi svaraði þess u erindi 4. febrúar 2023 og óskaði eftir að fá myndbandsupptökur sem lágu skýrsludrögunum til grundvallar, þar sem slíkt væri nauðsynlegt til að fá heillega mynd af málinu. Svar við beiðni stefnda barst 22. febrúar 2023 þar sem m.a. var beðist velvirðingar á töfum í málinu sem stöfuðu af miklu gagnamagni. 23. Stefndi svaraði erindi MAST þann 23. febrúar 2023 og óskaði eftir fresti til andmæla út mars, m.a. vegna þess hversu víðfeðmt og vísindalegt málið væri. Í kjölfarið var stefnda veittur frestur til 31 . mars 2023 til að koma á framfæri athugasemdum. Stefndi skilaði inn athugasemdum við skýrslu MAST 31. mars 2023. Í athugasemdum stefnda komu fram viðamiklar athugasemdir og þá einkum við þá aðferð sem beitt var við rannsóknina og niðurstöður hennar. Lokas kýrsla MAST barst stefnda svo rúmum mánuði síðar, n.tt. 8. maí 2023, þ.e. sama dag og hún var birt á heimasíðu MAST. 24. Á heimasíðu MAST sagði m.a. svo um efni skýrslunnar: MAST telur að aflífun á hluta stórhvela við veiðar á Íslandi hafi tekið of langan tíma út frá meginmarkmiðum laga um velferð dýra. Stofnunin telur hins vegar að við veiðarnar hafi verið beitt bestu þekktu aðferðum miðað við þær aðstæður sem þessar veiðar eru stundaðar við og því hafi ákvæði um veiðar í lögum um velferð dýra ekki verið brotin. MAST mun fela fagráði um velferð dýra að fara yfir fyrirliggjandi gögn og meta hvort veiðar á stórhvelum geti yfir höfuð uppfyllt markmið laga um velferð dýra. Ef slíkt er talið mögulegt, þurfa stjórnvöld að setja reglugerð um framkvæmd veið anna og lágmarkskröfur við þær. 7 Matvælastofnun telur þörf á áframhaldandi eftirliti á komandi vertíð. Vert er að taka fram að skv. gildandi veiðileyfi og lögum um velferð dýra er ábyrgð á að aflífun dýranna sé með ásættanlegum hætti ávallt á höndum framkv æmdaraðila. 25. Framangreint var rökstutt nánar í erindi MAST til ráðuneytisins í tilefni skýrslunnar, hvar stofnunin gerði grein fyrir niðurstöðum sínum en hún taldi að aflífun [hefði] tekið of langan tíma á hlutfalli af þeim dýrum sem voru veidd á veiði tímabilinu 2022 og [valdið] þeim dýrum meiri sársauka en ásættanlegt er ef horft er til markmiða laganna skv. 1. gr ., en hins vegar væri það mat stofnunarinnar að ákvæði 27. gr. laga um velferð dýra nr. 55/2013 um veiðar hafi ekki verið brotið . Þá taldi st ofnunin þörf á áframhaldandi eftirliti á komandi vertíð . 26. Stefndi hefur lagt fyrir dóminn gögn þar sem fram koma svör þáverandi matvælaráðherra á Alþingi og opinberum vettvangi, eftir birtingu skýrslunnar, en þau hafi verið á sama veg, t.d. í ræðustól Alþingis, 8. maí 2023, að [l]eyfið sem þessi framkvæmdaraðilar [sic] [hefðu gilti] til ársins 2023, þ.e. til næstu áramóta og að það væri vandkvæðum háð að afturkalla leyfið sem nú [væri] í gildi . Í kvöldfréttatíma Ríkisútvarpsins sama dag sagði ráðherra a ð það þyrfti lagagrunn til að kippa þessu leyfi úr sambandi en sá lagagrunnur [væri] ekki fyrir hendi eftir því sem [hún væri] upplýst um í [sínu] ráðuneyti . Á opnum fundi atvinnuveganefndar Alþingis, 23. maí 2023, ítrekaði matvælaráðherra enn frekar fyrri afstöðu sína um afturköllun leyfis hvar hún sagði að eins og nefndarmenn [vissu] þá [væri] afturköllun leyfis íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun, sem [þyrfti] að hafa skýra lagastoð en [r]áðherrann [gæti] ekki gert neitt annað heldur en það sem þingið [hefði] ákveðið með lögum og væri sú lagastoð ekki fyrir hendi hér . 27. Stefndi greinir frá því að eftir að eftirlitsskýrsla MAST lá fyrir hafi engin samskipti átt sér stað milli stefnda og MAST og hafi hann haldið áfram að undirbúa næstu hvalvertíð sem hefjast átti 21. júní 2023. Þann 19. júní 2023 kveðst stefndi fyrst hafa orðið þess var og þá úr fjölmiðlum að fagráð um velferð dýra hefði yfirfarið eftirlitsskýrslu MAST og komist að þeirri niðurstöðu að við veiðar á stórhvelum [væri] ekki hægt að uppfylla þau s kilyrði sem nauðsynleg [væru] til að tryggja velferð dýra við aflífun. Þann 20. júní 2023 kl. 11:25, eða degi áður en fyrirhuguð hvalvertíð átti að hefjast, að sögn stefnda að afloknum miklum og flóknum, þ. á m. kostnaðar - frekum, undirbúningi eðli málsins samkvæmt hafi stefndi fengið tölvuskeyti frá matvæla ráðu - neytinu þess efnis að fyrirhugað væri að takmarka veiðitíma langreyða á árinu 2023 en með skeytinu var sent álit fagráðs um velferð dýra frá 16. júní, sem birst hafði í fjölmiðlum 19. júní. Síðar sa ma dag hafi svo borist tilkynning um setningu reglugerðar nr. 642/2023. Samkvæmt 1. gr. reglugerðarinnar skyldu veiðar á árinu 2023 á langreyðum ekki hefjast fyrr en 1. september. 8 28. Í ljósi þessa tímabundna banns stjórnvalda við veiðum á langreyðum sendi stefndi tölvuskeyti 21. júní 2023 á nánar tilgreinda einstaklinga, þ. á m. stefnanda, þar sem greint var frá því að matvælaráðherra [hefði] þann 20. júní 2023, upp á sitt eindæmi og f yrirvaralaust, takmarkað veiðitímabil langreyða, þannig að þær [gætu] ekki hafist fyrr en fyrsta september 2023, samkvæmt því sem [segði] í ákvæði til bráðabirgða við reglugerð nr. 163/1973 um hvalveiðar, eins og henni [hafði] verið breytt af hálfu matvæla ráðherra og að [v]egna framangreinds [væru] forsendur fyrirhugaðra ráðninga brostnar og ekki [gæti] orðið af þeim . 29. Þann 29. júní 2023 sendi stefndi svo einstaklingum, en ekki stefnanda, tölvuskeyti þar sem stefndi upplýsti enn frekar um að ákvörðun rá ðherra hefði komið fyrirtækinu í opna skjöldu og að forsendur fyrir hvalvertíð 2023, a.m.k. fram til 1. september [2023], [væru] brostnar og þar með forsendur fyrir fyrirhugaðri ráðningu [einstaklings] . Brást Verkalýðsfélag Akraness (VLFA) við þessu í erin di 7. júlí 2023 sem stefndi svaraði með erindi 27. sama mánaðar. 30. Eftir að hinu tímabundna banni lauk, og í kjölfar setningar sérstakrar reglugerðar um veiðar á langreyðum nr. 895/2023, hóf stefndi veiðar í september 2023 og stóðu veiðar fram í lok þes s mánaðar, eða svo lengi sem veðurskilyrði buðu, en þegar líður á haust, upp úr mánaðamótum september/október, eru skilyrði til hvalveiða jafnan óhagfelld, ekki síst vegna birtuskilyrða og sjólags. 31. Stefndi lætur þess getið vegna málatilbúnaðar stefnan da að stefnandi hafi verið og sé enn starfs maður í frystihúsi í Hafnarfirði. Hann hafi verið í fullu starfi hjá stefnda frá árinu 2018, ólíkt því sem ráða megi af stefnu málsins. Þeim ráðningarsamningi hafi heldur ekki verið sagt upp í júní 2023. Uppsagna rbréf stefnda frá 29. júní 2023 hafi eingöngu verið sent einstaklingum sem fyrir hugað var að ráða til starfa í Hvalfirði. 32. Komi til hvalvertíðar sé ekki stofnað til sérstaks ráðningarsambands við stefnanda, og aðra í föstu starfi í Hafnarfirði, en þe ir njóti á hinn bóginn hærri launa en ella í formi unninnar yfirvinnu sem hvalvertíð kalli á. III. Málsástæður og lagarök stefnanda 33. Stefnandi reisir málatilbúnað sinn á því að ráðningarsamband hafi komist á milli stefnanda og stefnda. Það ráðningarsamband hafi verið tímabundið og miðað við hvalveiðivertíðina 2023, sem fyrirhugað var að hæfist 23. júní sama ár og stæði yfir í um þrjá mánuði. Þar af leiðandi hafi samningssambandið verið óuppsegjanlegt. 9 34. Stefnda hafi því verið óheimilt að segja stefnanda upp án bóta með bréfi 29. júní 2023. Að sama skapi hafi hvorki verið fyrir hendi skilyrði brostinna forsendna né 3. gr. laga nr. 19/1979. Því telur stefnandi að stefnda beri að greiða honum laun vegna hvalveiðitímabilsins 2023 í sam - ræmi vi ð það samkomulag sem var í gildi á milli aðila. Verði ekki fallist á aðalkröfu stefnanda byggir hann til vara á því að stefnda beri að greiða honum laun á uppsagnarfresti vegna tímabilsins frá 23. júní 2023 til 31. júlí 2023, í samræmi við ákvæði kjarasamn ings og laga um hópuppsagnir nr. 63/2000. Ráðningarsamband hafi verið komið á milli stefnanda og stefnda 35. Um stofnun ráðningarsambands fari eftir almennum reglum samningaréttarins. Þegar tilboð um starf hefur verið samþykkt hefur verið stofnað til rá ðningarsambands. Um ráðningarsamninga gildi sú meginregla íslensks réttar að samningar séu óformbundnir. Ráðningarsamband geti þar af leiðandi stofnast með óformlegum hætti og er samningur sem stofnast hefur með slíkum hætti jafngildur skriflegum samningi. 36. Stefnandi hafi haft samband við stefnda vorið 2023 og óskað eftir því að starfa á hvalveiði - vertíðinni komandi sumar. Með vísan til eftirfarandi samskipta stefnanda og stefnda sé ljóst að aðilar komust að samkomulagi um ráðningarsamband sem næði yfir hvalvertíðina 2023. Framan - greint hafi jafnframt verið venja í samskiptum aðila, en sami háttur hafi verið hafður á ráðningu árin á undan. 37. Allar athafnir stefnda hafi verið í samræmi við það ráðningarsamband sem stofnað hafði verið til. Samskipti að ila, háttsemi aðila og venjur á hvalvertíð leið til þess að komist hafi á bindandi samkomulag milli aðila um vinnusamband á hvalvertíð 2023. Kominn hafi verið á samningur og stefnda ekki verið heimilt að afturkalla tilboð sitt eftir að stefnandi hafði samþ ykkt það, sbr. 7. gr. laga um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, nr. 7/1936. 38. Af samskiptum aðila og venjum á hvalvertíð hafi að sama skapi verið ljóst hvað fólst í samningi aðila og stefndi hafi enga fyrirvara gert um ráðninguna eða önnur atr iði ráðningar - sambandsins. 39. Þótt munnlegir og óformbundnir samningar séu jafngildir hvíli þó sú skylda á atvinnu rekanda að gera skriflegan ráðningarsamning við starfsfólk. Bregðist hann skyldu sinni geti hann þó ekki komist undan skuldbindingum sínum . Samkvæmt ákvæði 1.13.1 í kjarasamningi Starfsgreina - sambands Íslands (SGS) Samtaka atvinnulífsins (SA) og skal gera skriflegan ráðningar samning við starfsmann eða staðfesta ráðningu skriflega, innan tveggja mánaða frá því að starfs maður 10 hefur störf. Þa ð að skriflegur ráðningarsamningur hafi ekki verið gerður bendi þannig ekki til þess að til ráðningarsambands hafi ekki verið stofnað enda hafi atvinnurekendur talsvert svigrúm til þess að ganga frá slíkum samningi í kjölfar ráðningar. Sé þannig með engu m óti unnt að gagnálykta út frá því að skriflegur ráðningarsamningur hafi ekki verið fyrir hendi heldur verði að líta til þeirra aðstæðna sem voru uppi og háttsemi aðila. 40. Loks er bent á að stefndi hafi, í erindi til starfsfólks, borið fyrir sig bæði br ostnar forsendur og 3. gr. laga nr. 19/1979. Forsenda þess að brostnar forsendur geti verið fyrir hendi, sé að samningssamband hafi verið komið á. Hið sama gildi um 3. gr. laga nr. 19/1979, sem stefndi vísaði til, þar sem fjallað sé um þær aðstæður að vinn a falli niður vegna hráefnisskorts eða ófyrirsjáanlegs áfalls í fiskiðjuverum eða við upp - og útskipunarvinnu. Hafi stefndi þannig einnig, með þessum hætti, viðurkennt í verki að stofnað hafi verið til ráðningarsambands. Í þessu samhengi gildi einu þó svo að í bréfi Hvals hf. sé greint á milli réttarstöðu þeirra sem höfðu undirritað ráðningarsamning og þeirra sem höfðu það ekki. Í báðum tilvikum hafi verið fyrir hendi ráðningarsamband. Tímabundinn ráðningarsamningur uppsögn sé óheimil 41. Í ráðningarsam bandinu milli stefnanda og stefnda hafi falist tímabundinn ráðningarsamn - ingur vegna hvalveiðivertíðarinnar 2023. Tímabundinn ráðningarsamningur vísi til ráðn ingar, þar sem lok samningsins ákvarðist af hlutlægum ástæðum, t.d. tiltekinni dagsetningu, lokum afmarkaðs verkefnis eða tilteknum aðstæðum, sbr. a - lið 1. mgr. 3. gr. laga um tímabundna ráðningu starfsmanna nr. 139/2003. Ljóst sé að stefnandi hafi verið ráðinn til þess að starfa á hvalveiðivertíðinni 2023 og var ráðning hans bundin við þá hlutlægu fo rsendu. 42. Meginreglan um tímabundna ráðningarsamninga sé að innan þess tíma sem ráðningin tekur til er ekki heimilt að slíta henni með uppsögn. Hafi stefnandi þar af leiðandi mátt búast við því að vera í vinnu hjá stefnda, uns ráðningartímanum lyki við enda hvalveiðitímabilsins, haustið 2023. Ef gera eigi undantekningu frá framangreindri meginreglu verði aðilar að semja sérstaklega um það og beri vinnuveitandi sönnunarbyrðina um tilvist slíks samkomulags. Ekkert slíkt samkomulag hafi komist á milli stef nanda og stefnda. 43. Af framangreindum ástæðum hafi stefnda verið óheimilt að slíta ráðningarsambandi aðila. Stefndi hafi verið bundinn af ráðningarsamningi sínum við stefnanda og hafi honum borið að efna skyldur sínar samkvæmt aðalefni hans og greiða s tefnanda umsamin laun út hið umsamda tímabil. Það að stefndi réði stefnanda síðar í annað starf hafi engin áhrif á skuldbindingargildi 11 þess tímabundna ráðningarsambands sem hafi verið komið á enda sé um aðskilda ráðningar - samninga að ræða, þó svo að það ha fi áhrif á útreikning kröfu stefnanda. Skilyrði brostinna forsendna ekki fyrir hendi 44. Vegna fullyrðinga stefnda í bréfum til stefnanda og annars starfsfólks 21. júní 2023 og 29. júní 2023 þykir stefnanda nauðsynlegt að fjalla jafnframt um þær ástæður sem stefndi hafi borið fyrir sig til réttlætingar slitum ráðningarsambands við stefnanda og annað starfsfólk. Hafi stefndi í þessum efnum fyrst og fremst reitt sig á regluna um brostnar forsendur. 45. Meginregla íslensks réttar sé að samninga beri að hal da og efna eftir aðalefni þeirra. Af meginreglunni um skuldbindingargildi löggerninga leiðir að þegar samningur er kominn á getur aðili almennt ekki losnað undan skuldbindingum sínum. Aðalreglan er þannig sú að samnings - aðilar bera sjálfir áhættuna af því að aðstæður breytist eða forsendur þeirra fyrir samningsgerð bresti. 46. Reglan um brostnar forsendur feli í sér undantekningu á framangreindum meginreglum og beri að túlka mjög þröngt. Reglan feli í sér að framkvæma verði hagsmunamat á því hvað sé sanngjörn og eðlileg niðurstaða, þ.e. hvorum samningsaðila standi nær að bera hallann af hinum brostnu forsendum. Í því mati komi ýmislegt til skoðunar, m.a. staða aðila og möguleikar þeirra á að sjá fyrir og hafa áhrif á forsendurnar. 47. Við mat á frama ngreindu sé m.a. lagt til grundvallar að ef samningsaðili mátti sjá fyrir þau atvik sem leiddu til þess að forsendur brustu, eða hafi séð þau sem nærtækan möguleika, geti hann ekki borið þær fyrir sig. Enn fremur sé litið til þess hvort samningsaðili sem v ill bera fyrir sig brostnar forsendur hafi sjálfur valdið eða átt þátt í því að forsendur bresti eða að efndir verði erfiðar eða ómögulegar. 48. Það sé hlutverk atvinnurekanda að tryggja að hann hafi tilskilin leyfi til þess að stunda þá atvinnustarfsemi sem hann leggur fyrir sig. Atvinnurekstur sé í eðli sínu áhættusamur og slíkri áhættu verði ekki varpað yfir á starfsmenn, enda hafi þeir ekki gengist við samskonar áhættu. Eðli hagsmunanna hafi þannig þýðingu enda sé ekki um að ræða tvo jafnsetta aðila. Ef fallist væri á að skilyrði brostinna forsendna væru til staðar, væri fallist á að heimilt hafi verið að svipta stefnanda vinnu sumarið 2023, daginn áður en hann átti að hefja störf, bótalaust. Við hagsmuna - mat hafi einnig þýðingu að stefnandi hafði grip ið til ýmissa ráðstafana til þess að geta starfað hjá stefnda á hvalvertíðinni. Fyrirvaralaus tilkynning stefnda hafi því valdið stefnanda umtals verðu tjóni. 12 49. Það hafi ekki þýðingu í þessu samhengi að forsendur stefnda hafi brostið vegna reglugerðar r áðherra sem stefndi telur að hafi skort lagastoð og ekki verið í samræmi við meðalhóf. Telji stefndi að ábyrgð hvíli hjá íslenska ríkinu sé honum rétt að leita réttar síns gagnvart því í stað þess að velta ábyrgðinni af hinni meintu ólögmætu háttsemi á ste fnanda og aðra starfsmenn sína. Hugsanlegar kröfur stefnda á hendur íslenska ríkinu breyti hins vegar engu um skyldur stefnda gagnvart stefnanda. 50. Stefnandi telur rétt að geta þess að skilyrði veiða og háttsemi stefnda hafði verið til skoðunar hjá stjó rnvöldum um nokkra hríð. Hafi stefndi því mátt hafa leitt hugann að breyttum aðstæðum. Eftir sem áður hafi stefndi ekki upplýst stefnanda um þessa óvissuþætti í samræmi við trúnaðar - og tillitsskyldur í samningssamböndum. Stefnandi bjó þannig ekki yfir söm u upplýsingum og stefndi en einnig af þessum ástæðum standist ekki við sanngirnismat að varpa ábyrgðinni yfir á stefnanda. Skilyrði 3. gr. laga nr. 19/1979 ekki fyrir hendi 51. Í erindi stefnda Hvals hf. til stefnanda, dags. 29. júní 2023, sé jafnframt vísað til 3. gr. laga um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms - og slysaforfalla, nr. 19/1979. 52. Í ákvæðinu kemur fram að falli niður atvinna hjá atvinnurekanda, svo sem vegna þess að hráefni sé ekki fyrir hendi hj á fiskiðjuveri, upp - og útskipunarvinna sé ekki fyrir hendi hjá skipa - afgreiðslu, fyrirtæki verði fyrir ófyrirsjáanlegu áfalli, svo sem vegna bruna eða skiptapa, yrði atvinnurekanda eigi gert að greiða bætur til launþega sinna, þó að vinna þeirra næmi eigi 130 klukkustundum á mánuði, enda misstu launþegar þá eigi uppsagnarrétt sinn meðan slíkt ástand varði. 53. Ákvæðið hafi fyrst verið fest í lög með lögum um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og rétt þess og fastra starfsmanna til launa vegn a sjúkdóms - og slysaforfalla, nr. 16/1958. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi komi fram að ákvæðinu sé ætlað að koma í veg fyrir ástæðulausar uppsagnir af hálfu atvinnurekanda, þegar vinna fellur niður af eðlilegum ástæðum. 54. Reglan feli, líkt og brostnar forsendur, í sér undantekningu frá því að samninga beri að halda og efna samkvæmt aðalefni þeirra. Enn fremur feli hún í sér undantekningu á þeirri meginreglu að áhættu í rekstri verði ekki fleytt yfir á starfsmenn fyrirtækis. Vegna þessa sé ekki unnt að ljá ákvæðinu víðtækari merkingu en leiðir af orðanna hljóðan og samræmist tilgangi ákvæðisins. 13 55. Ákvæðinu hafi þannig ljóslega ekki verið ætlað að taka til aðstæðna eins og í þessu máli, þar sem heimildir fyrirtækis til atvinnustarfsemi eru tak markaðar með stjórnvaldsfyrirmælum, enda sé ekki unnt að líta á slíkt sem ófyrirsjáanlegt áfall. Rekstraraðilar geti ekki búist við að lögum um rekstrarumhverfi þeirra verði ekki breytt. Sé þannig ekki unnt að fella slík tilvik undir undantekningarákvæðið. 56. Til viðbótar sé markmið 3. gr. laga nr. 19/1979 ekki að veita vinnuveitanda heimild til þess að slíta ráðningarsambandi við starfsfólk, líkt og stefndi hafi gert. Þvert á móti sé markmið ákvæðisins að koma í veg fyrir ráðningarslit. Heimilar það vin nuveitanda ekki að slíta ráðningu og borga ekki laun heldur sé markmiðið að tryggja atvinnu enda þótt laun falli niður á afmörkuðu tímabili vegna óvænts áfalls. Það myndi þannig beinlínis ganga gegn tilgangi ákvæðisins að beita því í fyrirliggjandi aðstæðu m. 57. Með sömu rökum og rakin hafa verið að framan geti almenn sjónarmið um force majeure ekki heldur átt við. Um aðalkröfu 58. Aðalkrafa stefnanda miðar að því að gera hann eins settan og hann hefði verið ef hann hefði verið í vinnu á hvalvertíð 202 3 og fengið laun á vertíðinni í samræmi við samnings samband aðila. 59. Tímabil hvalvertíðar hafi í gegnum árin öðlast fasta og skilgreinda merkingu enda hafi vertíðir ávallt hafist nokkurn veginn á sama tíma og þeim einnig lokið á sama tíma, með aðeins nokkurra daga skekkjumörkum. Hvalvertíð hafi þannig verið um og yfir þ rír mánuðir í mörg undanfarin ár. 60. Mótmælir stefnandi þannig fullyrðingum stefnda í bréfi frá 29. júní 2023 þar sem fram komi að hvalveiðivertíðin miði við það tímamark sem hvalveiðar hefjast og að það geti verið háð ytri aðstæðum og gildistíma opinbe rra leyfa. Væri byggt á túlkun stefnda hefði það í för með sér að vinnuveitandi hefði einhliða ákvörðunarvald um að breyta tímabili ráðningar starfsmanna veru - lega og starfsmenn væru í fullkominni óvissu um efni ráðningarsambandsins. Ljóst sé að slíkt fyri rkomulag væri óframkvæmanlegt jafnt sem það væri í verulegu ósamræmi bæði við megin - reglur vinnuréttarins og samningaréttarins. 61. Stefnandi hafi verið ráðinn á hvalveiðivertíð sem fyrir lá að myndi hefjast í upphafi sumars 2023 og vara fram á haust. Síð ar hafi verið slegið föstu að vertíðin skyldi hefjast 23. júní 2023. 14 Telur stefnandi þannig rétt að miða við að upphafsdagur ráðningar hafi verið þann dag. Við afmörkun kröfu sinnar telur stefnandi rétt að miða við að hið tímabundna ráðningarsamband hafi á tt að vara í um og yfir þrjá mánuði frá 23. júní 2023. Síðasta launatímabil á hvalvertíð klárist alltaf jafnvel þó að veiðum sé lokið og almennt taki nokkra daga að sinna frágangi eftir lok vertíðar. Af þeim sökum sé gerð krafa til 6. október 2023 þó að ve rtíð hafi klárast í lok september en framangreint sé í samræmi við raunverulegan vinnutíma stefnanda. Allt sé þetta þá í samræmi við hvalveiðivertíðir fyrri ára. 62. Fjárhæð kröfu stefnanda á hendur stefnda samanstendur af vangreiddum launum stefnda til s tefnanda á tímabilinu frá 23. júní til 6. október 2023 að frádregnum greiðslum stefnda til stefnanda vegna annars vegar vinnu við viðhald á tímabilinu 23. júní 2023 7. september 2023 en hins vegar vegna vinnu á vertíð 8. september til 6. október 2023. 63. Fjárhæð launa tekur mið af umsömdum launum og hefðbundnu vaktaplani hvalvertíða. Vegna dagvinnu greiddust þannig 2.767 kr., álag nam 1.176 kr., yfirvinna 4.981 kr. og staðaruppbót 569 kr. 64. Við útreikning vinnutíma er tekið mið af fyrirkomulagi og v innutíma stefnanda vegna vertíða fyrri ára. Samkvæmt þessu er miðað við að stefnandi hefði mætt í vinnu 23. júní 2023. Brælufrí hefðu verið tveir dagar samfelldir fyrir hverjar tvær vikur. Frá og með 8. september 2023 er svo tekið mið af raunverulegu vinnu framlagi stefnanda. 65. Krafan sundurliðist með eftirfarandi hætti: 66. Samtals hefði stefnandi þannig fengið greiddar 5.902.650 kr. fyrir alla hvalvertíðina. Til frádráttar kröfunni koma þau laun sem stefndi greiddi stefnanda vegna vinnu við viðhald á tímabilinu frá 23. júní 2023 til 6. september 2023 og vegna vinnu á hvalveiðitímabilinu f rá 7. september til 6. október 2023. Til frádráttar koma þannig 232.596 kr. 1. júlí 2023 vegna vinnu í júní 2023, 582.899 kr. 1. ágúst 2023 vegna vinnu í júlí 2023, 938.979 kr. 1. september 2023 15 vegna vinnu í ágúst 2023, 1.516.407 kr. 1. október 2023 vegna vinnu í september 2023 og 312.131 kr. 1. nóvember 2023 vegna vinnu í október 2023. 67. Samtals gerir stefnandi því kröfu um greiðslu 2.319.667 kr. auk dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 4. nóvember 2025 ti l greiðsludags. Um varakröfu 68. Varakrafa stefnanda kemur aðeins til skoðunar ef fallist verður á að stefnanda hafi verið sagt upp störfum hjá stefnda með lögmætum hætti. Stefnandi ber því við að ef litið verði svo á að honum hafi verið sagt upp með lög mætum hætti eigi hann rétt til greiðslu launa á uppsagnarfresti samkvæmt kjarasamningi SGS og SA, sbr. og ákvæði 1. gr. laga um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda nr. 55/1980 og 7. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938. 69. Samkvæmt ákvæði 12.2 í kjarasamningi SGS og SA er uppsagnarfrestur einn mánuður miðað við mánaðamót eftir þriggja mánaða samfellt starf hjá sama atvinnurekanda. Samkvæmt ákvæði 12.6.1 haldast áunnin réttindi við endurráðningu innan eins árs. Stefnan di vísar til þess að hann hafi starfað hjá stefnda á hvalvertíðinni 2022 sem hafi staðið yfir frá 22. júní 2022 til 28. september 2022. Hafi stefnandi þá áunnið sér mánaðar uppsagnarfrest. Stefnandi hafi ráðið sig til vinnu innan árs frá lokum hvalveiðitím abilsins og haldið þannig áunnum uppsagnarfresti. Krafa stefnanda sé þar af leiðandi um laun á uppsagnarfresti. 70. Uppsagnarfrestur miði við mánaðamót en stefnda hafi verið sagt upp í lok júní 2023. Sé því gerð krafa um laun á uppsagnarfresti vegna tíma bilsins frá 22. júní 2023 til 31. júlí 2023. 71. Framangreind krafa sæki sér jafnframt stoð í lög um hópuppsagnir nr. 63/2000. Með aðgerðum sínum hafi stefndi raunar sagt upp tæplega 200 starfsmanna sinna. Uppsagnirnar verði ekki raktar til ástæðna sem t engjast starfsfólkinu og sé því ljóst að um ræði hópuppsögn í skiln - ingi 1. gr. laga um hópuppsagnir, nr. 63/2000. Ágreiningslaust megi vera með aðilum að stefndi hafi ekki fylgt fyrirmælum laga um hópuppsagnir þegar ráðningarsamningi stefnanda hafi verið sagt upp. Raunar hafi uppsögn ekki átt sér stað með lögmætum hætti fyrr en að loknu samráði eins og hafi verið slegið föstu í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins. Hafi stefnda þannig í hið minnsta borið, í samræmi við 9. gr. laganna og fyrrnefnd ákvæði kjarasa mnings stefnanda, að greiða stefnanda laun á uppsagnarfresti vegna tímabilsins frá 21. júní 2023 til 31. júlí 2023. 16 72. Útreikningur varakröfu stefnanda tekur mið af sömu forsendum og útreikningur aðalkröfu hans, þ.e. miðað er við umsamin laun og vinnutí mi áætlaður miðað við vertíð 2022. Til frádráttar komi laun sem hann fékk greidd frá stefnda vegna vinnu í júní og júlí 2023, alls 815.468 kr. 73. Varakrafa stefnanda sundurliðist með eftirfarandi hætti: 74. Samtals gerir stefnandi því kröfu um greiðslu 1.323.759 kr., auk dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 4. nóvember 2025 til greiðsludags. IV. Málsástæður og lagarök stefnda 75. Stefndi mótmælir öllum málsástæðum stefnanda, þ. á m. varðandi túlkun laga og reglna. Ekki er hins vegar gerður ágreiningur um tölulega útreikninga dómkrafna, samkvæmt þeim forsendum s em þeir byggja á. Þá er ekki gerður ágreiningur um upphafstíma dráttarvaxta. Jafnframt liggur fyrir að stefnandi, þ. á m. fyrir tilstuðlan síns stéttarfélags, hefur haldið meintum rétti til haga. Enginn samningur komst á 76. Stefndi telur kjarna málsins þann að stefnandi hafi verið í föstu ráðningarsambandi í Hafnar - firði. Ekki sé stofnað til sérstaks ráðningarsambands vegna hvalvertíða við þá sem vinna í frysti - húsi stefnda í Hafnarfirði í fullu starfi. Stefnandi hafi tekið laun samkvæmt 20. kafla kjara - samnings SGS við SA. Launin, komi til hvalvertíðar, taki áfram mið af þeim kjara samningi, en verði hærri en ella vegna aukinnar vinnu (helgarvinna, yfirvinna o.fl.). Þar sem vertíðin hafi ekki hafist fyrr en í september hafi launin tekið mið af unninni vi nnu, eðli málsins samkvæmt. Þegar af þessum ástæðum beri að sýkna stefnda af kröfum stefnanda. Megin forsendur málatilbúnaðar stefnanda séu þannig rangar. 77. Stefndi byggir á því að ekki hafi komist á skuldbindandi ráðningarsamningur milli málsaðila, með þeim hætti sem stefnandi byggir á. Stefndi vísar til þess að stefnandi hafi ekki skrifað undir ráðningarsamning líkt og tíðkist þegar stofnað sé til tímabundinna ráðningarsambanda hjá stefnda í Hvalfirði vegna hvalvertíða. Stefndi hafi aldrei skuldbundið sig til að ráða stefnanda í vinnu sérstaklega vegna hvalvertíðar, heldur hafi hann þegar verið í vinnu sem fyrr segir. Það sé hvort tveggja rangt og ósannað að stefnandi hafi fengið staðfestingu frá stefnda, eða því um líkt, 17 um stofnun sérstaks ráðningarsa mbands vegna hvalvertíðar. Stofnun, þ. á m. gildistaka, slíks sérstaks ráðningarsambands hefði hvað sem öðru líður, og eðli máls samkvæmt, verið bundin því skilyrði/fyrirvara og háð þeirri forsendu að til hvalveiða kæmi, enda starf stefnanda, kæmi til þess , órjúfanlega tengt hvalveiðum. Hvorki árið 2023, né fyrri vertíðir, hafi stofnun ráðningar - sambanda verið með þeim hætti sem stefnandi virðist telja, sbr. m.a. meintar venjur sem séu rangar og ósannaðar. Hvalvertíð, og þar með stofnun ráðningarsambands, m iðist þess utan við tímabil frá því hvalveiðar hefjast (veiðar og vinnsla) og þar til þeim lýkur, sem m.a. geti verið háð ytri aðstæðum og gildistíma opinberra leyfa til veiða og vinnslu. Þá sé jafnframt rangt að stefndi hafi tilkynnt stefnanda um uppsögn sérstaks ráðningarsamnings, enda enginn slíkur samn - ingur kominn á, og stefndi hafi ekki boðið stefnanda nýtt ráðningarsamband í formi viðhalds - vinnu o.fl., heldur hafi stefnandi haldið áfram sínu fasta starfi. 78. Stefndi hafi aldrei í verki viðurkennt a ð ráðningarsamband hafi stofnast, líkt og stefnandi ámálgi í fyrsta sinn í stefnu, hvar stefnandi afbaki erindi stefnda frá 29. júní 2023. Fyrir það fyrsta hafi umrætt erindi aldrei verið sent stefnanda heldur eingöngu þeim sem ráðgert hafi verið að stofna til ráðningarsambands við í Hvalfirði og geti því enga þýðingu haft. Í erindi stefnda, þann 29. júní, var hvað sem öðru líður, rétt eins og þann 21. júní, sem var heldur ekki sent stefnanda gert kirfilega ljóst, þ. á m. í upphafi erindis, að vegna ákvörðu nar ráðherra gæti ekki orðið af stofnun fyrirhugaðs ráðningarsambands, þ.e. að forsendur fyrir stofnun þess væru brostnar. Í framhaldi hafi verið gerð grein fyrir þeirri afstöðu VLFA að stofnast hefði til ráðningarsambands sem stefndi féllst hins vegar ekk i á, sbr. upphaf bréfsins um þá afstöðu stefnda að ekkert ráðningarsamband væri fyrir hendi, en [t]il vara, sé ráðningarsamningur fyrir hendi , segir Hvalur með skeyti þessu upp þeim samningi, líkt og fram komi síðar í bréfinu. Tilvísun stefnda, í erindinu 29. júní, til 3. gr. laga nr. 19/1979 sé í samhengi við þá afstöðu VLFA að stofnast hafi til ráðningarsambands, sem stefndi hafi verið samkvæmt framansögðu ósammála, þ.e. að hafi stofnast til ráðningarsambands á annað borð taldi stefndi að engin greiðslusk ylda væri fyrir hendi við þær aðstæður sem væru uppi vegna ákvæðisins. Í lok bréfsins sé jafnframt tiltekið sérstaklega að stefndi hafi til skoðunar að bjóða ráðningarsamband. Stefndi hafi þannig ljóslega aldrei talið og viðurkennt að ráðningarsamband væri komið á, heldur þvert á móti, og hafi ekki greitt vertíðarlaun til samræmis við þá afstöðu. Fyrrgreint erindi VLFA til stefnda 7. júlí 2023 beri jafnframt skýrlega með sér að stefnanda hafi verið þessi afstaða stefnda ljós. 79. Stefndi vísar jafnframt s érstaklega til þess að stefnandi hafi aldrei boðið fram vinnuframlag sitt til samræmis við efni meints ráðningarsambands sem hann telur hafa stofnast sem standi þá þegar málatilbúnaði hans og kröfum í vegi. 18 Hafi samningur komist á 80. Verði, þvert á fram angreint, litið svo á að stofnast hafi til ráðningarsambands, telur stefndi kröfur stefnanda ekki eiga sér lagalegan grundvöll. 81. Stefndi vísar til þess að samkvæmt 3. gr. laga nr. 19/1979 um rétt verkafólks til uppsagnar - frests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms - og slysaforfalla falli niður atvinna hjá atvinnu - rekanda, svo sem vegna þess að hráefni er ekki fyrir hendi hjá fiskiðjuveri, upp - og útskipunar - vinna er ekki fyrir hendi hjá skipaafgreiðslu, fyrirtæki verður fyrir ófyrirsjáanlegu áfalli, svo sem vegna bruna eða skiptapa, og verður atvinnurekanda þá eigi gert að greiða bætur til launþega sinna, þó að vinna þeirra nemi eigi 130 klukkustundum á mánuði, enda missa launþegar þá eigi uppsagnarrétt sinn meðan slíkt ástand varir. Stefndi byggir á því að skilyrði ákvæðisins séu upp - fyllt að virtum atvikum máls, þ. á m. þeirri staðreynd að af setningu reglugerðarinnar hafi leitt að tímabundið bann var sett við veiðum stefnda, fyrirvaralaust með tilheyrandi aflabresti og um leið tekjufalli, líkt og en durspeglist nánar í framlögðum útreikningum Deloitte ehf. um tekjufall stefnda vegna þessa á hvalvertíð 2023. Svo sem minnisblað Deloitte ehf. beri með sér, og leiðir af sjálfu, þá leiddi af banninu að veiddar langreyðar, og um leið fénýting þeirra, voru t il muna færri en ella hefði verið (24 í stað að jafnaði um 150), auk þess sem á sama tíma og tekju - samdráttur varð hjá stefnda vegna bannsins hafi stefndi þurft að bera tiltekinn rekstrarkostnað, þ. á m. fastan, svo sem vegna reksturs hvalveiðiskipa og sta rfsstöðva í Hvalfirði og Hafnarfirði, án þess að tekjur kæmu á móti. 82. Samkvæmt minnisblaðinu sé tjón stefnda vegna tímabundna bannsins metið um 1.039 m.kr., en til viðbótar komi um 1 ma.kr. yrði fallist á að stefnda bæri að greiða full vertíðarlaun öllum þeim sem voru í sömu eða svipaðri stöðu og stefnandi. Stefndi bendi r jafnframt sérstaklega á að bannið hafi verið ófyrirséð en þess utan séu ófyrirséð ytri atvik ekki skilyrði fyrir beitingu ákvæðisins. Vísist jafnframt til umfjöllunar í næstu málsgreinum að breyttu breytanda. 83. Stefndi byggir jafnframt á því að frama ngreint ákvæði eigi við samkvæmt lögjöfnun, falli stefnandi ekki undir það, enda skilyrði lögjöfnunar um efnislegan sambærileika og hallkvæmni og haganleika reglu sem fundin sé með lögjöfnun fullnægt. Yrðu atvik máls ekki talin falla undir ákvæðið byggir s tefndi jafnframt á því að skilyrði lögjöfnunar séu uppfyllt hvað þau varðar, þ. á m. um efnislegan sambærileika og haganleika og hallkvæmni reglu sem fundin er með lög jöfnun. 84. Stefndi vísar jafnframt til þess að fyrir hendi hafi verið óviðráðanleg ytr i atvik (force majeure). Efnislegt inntak reglunnar um force majeure sé að ófyrirséð, óviðráðanleg ytri atvik 19 sem séu sérstök í eðli sínu og valdi því að ómögulegt, eða því sem næst, sé að efna samnings - skuldbindingu eigi að hafa áhrif á efndaskyldu eða þa ð hvort eða hvaða vanefndaúrræðum megi beita. Stefndi byggir á því að skilyrði reglunnar teljist uppfyllt. Setning stjórn valdsfyrirmælanna hafi verið ófyrirséð og raskaði forsendum samningssambandsins, enda leiddi af ákvörðun ráðherra tímabundið bann við veiðum með tilheyrandi aflabresti og um leið tekju falli, sbr. umfjöllun í næstu málsgreinum á undan, að breyttu breytanda. Með sömu rökum telur stefndi ljóst að skilyrðum ólögfestrar meginreglu samningaréttar um brostnar forsendur sé full nægt. Þá leiði 3 6. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga með sömu rökum til sömu niðurstöðu, enda ósanngjarnt eða andstætt góðri viðskiptavenju að bera meintan ráðningarsamning fyrir sig að virtum atvikum sem síðar komu til í skilningi ákvæðisin s, þ.e. ákvörðun ráðherra í formi stjórnvaldsfyrirmæla um tímabundið bann við veiðum með þeim afleiðingum sem af því leiddi. Efni meints ráðningarsamnings sé um leið ósanngjarnt eigi hann að halda gildi sínu, eins og ekkert hafi í skorist. Því sé um leið m ótmælt að atburðarásin hafi getað talist fyrirséð, enda í engu samræmi við orð og athafnir MAST og matvælaráðherra í undan - fara setningar reglugerðarinnar, sbr. að framan , heldur hafi verið um fordæmalausa stjórn valds - athöfn að ræða, þvert m.a. á réttmæta r væntingar og stjórnarskrárvarin réttindi stefnda. Hafi stefnda ekki verið um að kenna og öll tilskilin leyfi verið til staðar. Stefnanda sé því rétt að sækja bætur á hendur íslenska ríkinu telji hann sig bera skarðan hlut frá borði . 85. Stefndi byggir j afnframt á því að það hafi verið forsenda ráðningarsamnings, hafi hann komist á, og þar með hluti hans, að réttur stefnanda til fullra vertíðarlauna væri háður því að hvalveiðar færu fram, en vertíðargreiðslur hefjist fyrst í tengslum við komu fyrsta hvals í land . 86. Stefndi vísar einnig til þess að hvalvertíð, sem hafi átt að byrja í júní, hafi í reynd lokið með ákvörðun ráðherra og þar með meintri tímabundinni ráðningu stefnanda, en ráðningarsambönd í gegnum tíðina, þ. á m. gagnvart stefnanda 2022, hafi verið með þeim hætti að þeim ljúki við lok hvalvertíðar, og ætti það sama þá við hér, sbr. einnig forsendukenningar samningaréttar og venju, sem standi þá þegar kröfum stefnanda í vegi. Verði ekki annað séð en að stefnandi líti svo á að meintur ráðningars amningur sem hafi stofnast hafi verið sama efnis og áður, sbr. meðal annars tilvísun til venju, og öðru ekki borið við. 87. Stefndi vísar jafnframt til þess, hvað sem öðru líður, að hafi stofnast til sérstaks ráðningar - sambands á annað borð, þá verði að l eggja til grundvallar að stefndi hafi sagt því upp í júní, með því að efna ekki meintar skyldur sínar (einhliða breyting á ráðningarkjörum), líkt og stefnandi sjálfur byggir á. Stefnandi, í ljósi þess að hann hafi unnið á hvalvertíð á árinu áður, þ.e. 2022 , eigi þá, að hámarki, og enda sé ekki fallist á framangreindar mótbárur, kjarasamningsbundinn 20 rétt til launa í einn mánuð miðað við mánaðamót, þ.e. vegna júlímánaðar, líkt og felist í varakröfu stefnanda. Ekki verði séð að stefnandi beri brigður á lögmæti uppsagnarinnar sem slíkrar, og þá a.m.k. ekki með þeim hætti að slíkt eigi að leiða til þess að horft sé framhjá henni. Hvað sem því líði, þá bendir stefndi á að ástæða þess að fyrirmælum laga nr. 63/2000 um hópuppsagnir hafi ekki verið fylgt út í hörgul hafi eðli málsins samkvæmt verið sú að stefndi taldi að ekki hefði stofnast til ráðningarsambands yfir höfuð, engum trúnaðarmanni verið til að dreifa o.s.frv . Þá hafi aðstæður verið fordæmalausar, og stefndi þurft eðli máls samkvæmt að bregðast hratt við t il að takmarka tjón sitt eftir föngum, og verði ekki séð að lögin nái til eða séu hugsuð fyrir aðstæður sem þessar. Þá leiði einnig af gildandi kjara samningi að það teljist ekki til hópuppsagna þegar starfslok verða samkvæmt ráðningar samningum sem gerðir eru til ákveðins tíma eða vegna sérstakra verkefna. Telur stefndi, þegar litið er á aðstæður í heild og þá óvissu sem ríkti á þeim tíma, að uppsagnir stefnda hafi verið lögmætar en ella sé að hámarki miðað við einn mánuð samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laganna se m er sami uppsagnarfrestur og samkvæmt kjarasamningi . 88. Stefndi hafnar þá þeirri viðbáru stefnanda að stofnast hafi til tímabundins ráðningarsambands sem hafi verið óuppsegjanlegt. Vísar stefndi til þess að samkvæmt eldri ráðningarsamningum, þ. á m. gag nvart stefnanda sjálfum, hafi alltaf verið gagnkvæmur uppsagnarfrestur á starfstíma samkvæmt kjarasamningi. Sama hafi gegnt um þann ráðningarsamning sem stofnað hafi verið til sérstaklega í september 2023 vegna vertíðarinnar sem hófst þá. 89. Framangrein t eigi þá líka við um meint ráðningarsamband, sbr. einnig forsendukenningu samningaréttar og venju , sbr. einnig fyrri málatilbúnað stefnanda þess efnis að [a]f samskiptum i [hafi] enga fyrirvara gert um ráðninguna eða önnur atriði ráðningarsambandsins . Hefði stefndi heldur aldrei tekið annað í mál og ljóst að stefnanda hafi ekki getað dulist það. Samkvæmt samningsformi því sem átti að leggja til grundvallar á hvalvertíð 202 3 hafi jafnframt verið gert sérstaklega ráð fyrir V. Niðurstaða Almennt 90. Grundvallarmunur er á þessu máli og öðrum málum sem rekin eru hér samtímis og samhliða, sbr. framangreint, en á þó nokkuð skylt við mál nr. E - 234/2025, að því leyti að stefnendur í báðum málum voru starfsmenn stefnda þegar til þess kom að stefndi réðst í að ráða mannskap til hvalvertíðar 2023 eða a.m.k. hafa menn reiðubúna til starfa. Í öðrum málum er um það að ræða að stefnendur hafa stofnað til ráðningarsambands við stefnda einungis vegna fyrirhugaðrar 21 hvalvertíðar það árið og hafa því jafnvel í mörgu m tilvikum þurft að grípa til sérstakra ráðstafana til að geta staðið við sinn hluta af samningnum og mætt til vinnu þegar lokakallið kæmi. 91. Ekki er þannig ágreiningur um að stefnandi var í föstu ráðningarsambandi við stefnda í frystihúsi stefnda í Ha fnarfirði. Starfaði hann þar áður en undirbúningur hófst fyrir hvalvertíð 2023. Af gögnum málsins má þó ráða að stefnandi hafi, um sumarið 2023 líkt og sumir þeirra sem réðu sig sérstaklega á hvalvertíð, unnið við viðhald og endurbætur á starfsstöð stefnda í Hvalfirði. Einnig er ágreiningslaust að stefnandi starfaði við þá skammvinnu vertíð sem hófst í september 2023 og stóð út þann mánuð eftir að veiðar voru heimilaðar. 92. Að mati dómsins skiptir mestu við úrlausn þessa máls að samkvæmt framburði forsvarsmanns stefnda og stefnanda fyrir dómi er ekki hægt að líta svo á að stofnað hafi verið til sérstaks ráðn - ingarsambands vegna fyrirhugaðrar hvalvertíðar 2023. Stefnandi hefði allt að einu tekið áfram laun og notið réttinda samkvæmt sama kafla 20 (ið nverkafólk) í kjarasamningi SGS við SA en breytingin orðið sú að laun stefnanda hefðu hækkað sem svaraði til aukins vinnuframlags hans en einnig vegna óhefðbundins vinnutíma, þ.e. helgarvinnu og aukinnar yfirvinnu o.s.frv. Samkvæmt framburði stefnanda fyri r dómi var ekki gerður sérstakur samningur þótt hvalvertíð stæði fyrir dyrum og enginn sérstakur fundur verið haldinn af því tilefni vorið 2023, heldur hafi það einfaldlega frést fljótlega upp úr áramótum, febrúar, mars eða apríl, að af hvalvertíð yrði. Ág reiningslaust er að það hefði orðið veruleg búbót fyrir stefnanda ef af vertíðinni hefði orðið eins og ágreiningslausar stefnukröfur málsins, þ.e. hvað fjárhæðir varðar, endurspegla. 93. Dómurinn telur hins vegar ósannað að gerður hafi verið sérstakur sa mningur um hvalvertíð þannig að skapað hafi stefnanda aukinn rétt gagnvart stefnda. Ekki er því hægt að líta svo á að stefndi hafi tekið á sig auknar skuldbindingar gagnvart stefnanda með því að upplýsa hann, líkt og væntanlega aðra starfsmenn í föstu ráðn ingarsambandi og svipaðri stöðu, um að von væri á hvalvertíð með tilheyrandi auknu álagi og samsvarandi hærri launum. 94. Þegar í ljós kom að af hvalvertíð varð ekki verður ekki séð að stefnanda hafi borist uppsögn á meintum ráðningarsamningi og heldur e kki að honum hafi borið slík. 95. Þegar af framangreindri ástæðu verður stefndi sýknaður af kröfum stefnanda en framangreint gildir bæði um aðal - og varakröfu stefnanda. Gerist því ekki þörf á að taka afstöðu til annarra málsástæðna stefnda fyrir sýknu. 22 96. Þá verður ekki fallist á með stefnanda að lög um hópuppsagnir nr. 63/2000 breyti þessari niðurstöðu, þegar af þeirri ástæðu að stefnanda var ekki sagt upp störfum hjá stefnda. Þótt vissu - lega hafi verið fyrirheit um aukna vinnu og bætta afkomu sem því næmi verður ekki fallist á að sú breyting hafi, í tilviki stefnanda sem var bæði fyrir og eftir í föstu ráðningarsambandi við stefnda, jafngilt uppsögn á ráðningarsamningi. Nið u rstaða málsins, málskostnaður og annað 97. Niðurstaða málsins verður því sú að dómurinn telur að enginn ráðningarsamningur, sem væri þá viðbótarsamningur við þann ráðningarsamning sem fyrir var, hafi komist á með þeim réttar - áhrifum að skapað hafi stefnanda rétt til launa eins og af hvalvertíð hefði orðið eða launa sem næmi kjara samningsbundnum uppsagnarfresti hans, sbr. niðurstöðu dómsins í málum nr. E - 231 og 233/2025. Lög um hópuppsagnir nr. 63/2000 breyta ekki þeirri niðurstöðu enda eiga lögin ekki við í tilviki stefnanda sbr. að sínu leyti sjónarmið í dómi Hæstaréttar í máli n r. 3/2024. 98. Að virtum málsatvikum og að teknu tilliti til stöðu aðila þykir rétt að málskostnaður milli aðila falli niður samkvæmt 3. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. 99. Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður flutti málið fyrir stefn anda og Dagur Fannar Jóhannesson lögmaður fyrir stefnda. 100. Málið dæmir Lárentsínus Kristjánsson héraðsdómari á Vesturlandi. D Ó M S O R Ð Stefndi, Hvalur hf., er sýkn af kröfum stefnanda, Patreks Ísaks Ólafssonar. Málskostnaður milli aðila fellur niður. Lárentsínus Kristjánsson