Héraðsdómur Norðurlands vestra Dómur 16. desember 2025 Mál nr. S - 91/2025 : Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra ( Sigurður Hólmar Kristjánsson settur lögreglustjóri ) g egn Gunnar i Þór Óðinss yni ( enginn ) Dómur 1. Mál þetta var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi vestra, dags. 13. nóvember 2025, á hendur Gunnari Þór Óðinssyni , kt. . Málið var dómtekið 9. desember 2025 . 2. Í ákæru segir að málið sé höfðað gegn ákærða fyrir eftirfarandi brot: fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, miðvikudaginn 5. nóvember 2025, sviptur ökurétti með dómi, ekið bifreiðinni með 143 km hraða um Norðurlandsveg við Gauksmýri Húnaþingi vestra, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst hátts emi þessi varða við 1. mgr. 58. gr. og 3. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr., umferðarlaga nr. 77/2019. [...] Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar , til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. laga nr. 7 7/2019 3. Ákærði sótti ekki þing og boðaði ekki forföll þegar málið var þingfest 9. desember sl. Málið er því dæmt með vísan til 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda er þess getið í fyrirkalli sem birt var á lögmætan hátt, 3. desember sl., í stafrænu pósthólfi á vefsvæðinu island.is, sbr. 156. gr. a í sömu lögum, að svo mætti fara með málið. 4. Þar sem ákærði hefur ekki látið málið til sín taka verður með vísan til þess sem að framan er rakið að líta svo á að hann viðurkenni háttsemi þá s em honum er í ákæru gefin að sök og telst sök hans þar með nægilega sönnuð enda er ákæran í samræmi við gögn málsins og brot hans þar réttilega færð til refsiákvæða. Um málsatvik vísast til ákæru. 2 5. Ákærði er fæddur árið . Samkvæmt framlögðu sakarvottorði , dags. 13 . nóvember 2025, hefur ákærði áður gerst brotlegur við refsilög. Í febrúar 2022 var ákærði dæmdur til greiðslu sektar og var sviptur ökuréttindum í tvö og hálft ár vegna brots á umferðarlögum nr. 77/2019 og brots gegn lögum nr. 65/1974 um ávana - og fíkniefni. Í október sama ár var ákærða gert með dómi að sæta fange lsi í fimm má nuði skilorðisbundið til tveggja ára og sviptingu ökuréttinda í eitt ár vegna brots á umferðarlögum nr. 77/2019 og brots gegn lögum nr. 65/1974 um ávana - og fíkniefni . Í okt óber 2024 var ákærða gert að greiða sekt fyrir brot gegn umferðarlögum og í september 2025 var ákærða gert að greiða sekt fyrir brot gegn umferðarlögum. 6. S amkvæmt því sem rakið er hér að framan er ákærði nú sakfelldur fyrir að aka í fjórða sinn fyrir að a ka sviptur ökurétti. Áralöng dómvenja stendur til þess að við ákvörðun refsingar fyrir brot af þessu tagi er horft til ákvæða 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 hvað ítrekun varðar. Ákærði er með dómi þessum sakfelldur fyrir að aka ítrekað sviptur ökurétti. Að þessu gættu og með hliðsjón af 77. gr. nefndra laga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi og þá er og rétt að gera honum sekt að fjárhæð 210 .000 krónur fyrir að hraðakstur en 1 6 daga fangelsi komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna. 7. Þá ber með vísan til tilvitnaðra ákvæða í ákæru að svipta ákærða ökurétti í einn mánuð frá 8. mars 2026, þegar núverandi svipting réttinda hans rennur út . 8. Sakarkostnaður hef ur ekki fallið til við meðferð málsins. 9. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Sigurður Hólmar Kristjánsson settur lögreglustjóri. 10. Þorsteinn Magnússon héraðsdómari kveður upp dóminn. Dómsorð: Ákærði, Gunnar Þór Óðinsson, sæti fangelsi í 30 daga. Ákærði greiði 210.000 króna sekt til ríkissjóðs en 16 daga fangelsi komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna. Ákærði er sviptur ökurétti í einn mánuð frá 8. mars 2026 að telja . Þorsteinn Magnússon