Héraðsdómur Norðurlands vestra Dómur 16. desember 2025 Mál nr. S - 92/2025 : Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra ( Sigurður Hólmar Kristjánsson settur lögreglustjóri ) g egn Jakob i Jóhann i Einarss yni ( enginn ) Dómur 1. Mál þetta var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi vestra, dags. 1 3. nóvember 2025, á hendur Jakobi Jóhanni Einarssyni , kt. . Málið var dómtekið 9. desember 2025 . 2. Í ákæru segir að málið sé höfðað gegn ákærða fyrir eftirfarandi brot: fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, sunnudaginn 9. nóvember 2025, ekið bifreiðinni sviptur ökurétti um Fitjaveg, Húnaþingi vestra, þar sem lögregla hafði afskipti af ákærða. Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 5 8. gr., sbr . 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. [...] Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaða r . 3. Ákærði sótti ekki þing og boðaði ekki forföll þegar málið var þingfest 9. desember sl. Málið er því dæmt með vísan til 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda er þess getið í fyrirkalli sem birt var á lögmætan hátt , 19. nóvember sl., í stafrænu pósthólfi á vefsvæðinu island.is, sbr. 156. gr. a í sömu lögum, að svo mæt ti fara með málið. 4. Þar sem ákærði hefur ekki látið málið til sín taka verður með vísan til þess sem að framan er rakið að líta svo á að hann viðurkenni háttsemi þá sem honum er í ákæru gefin að sök 2 og telst sök hans þar með nægilega sönnuð enda er ákæran í samræmi við gögn málsins og brot hans þar réttilega fær ð til refsiákvæða. Um málsatvik vísast til ákæru. 5. Ákærði er fæddur árið . Samkvæmt framlögðu sakarvottorði, dags. 13. nóvember 2025, hefur ákærði áður gerst brotlegur við refsilög. Í maí 2024 var á kærða gert að greiða sekt fyrir brot gegn umferðarlögum og sviptur ökurétti í átján mánuði. Í september sama ár var ákærða gert að greiða sekt fyrir brot gegn umferðarlögum og sviptur ökurétti í níu mánuði. Í desember 2024 var ákærða gert að greiða sekt fy rir akstur sviptur ökurétti og í ágúst 2025 var ákærða aftur gert að greiða sekt fyrir aka sviptur ökurétti. Áralöng dómvenja stendur til þess að við ákvörðun refsingar fyrir brot af þessu tagi er horft til ákvæða 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 hvað ítrekun varðar. Ákærði er með dómi þessum sakfelldur fyrir að aka ítrekað þriðja sinni sviptur ökurétti. Að þessu gættu og með hliðsjón af 77. gr. nefndra laga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi. 6. Sakarkostnaður hefur ekki fallið til við meðferð málsins. 7. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Sigurður Hólmar Kristjánsson settur lögreglustjóri. 8. Þorsteinn Magnússon héraðsdómari kveður upp dóminn. Dómsorð: Ákærði, Jakob Jóhann Einarsson, sæti fangelsi í 30 daga. Þorsteinn Magnússon